Um Alskil
Alskil hf. voru stofnuð árið 2006. Stofnendur og stjórnendur félagsins hafa áratuga reynslu í fyrirtækjarekstri, innheimtumálum og þróun á innheimtukerfum.
Alskil er þjónustufyrirtæki sem byggir starfsemi sína að verulegu leyti á hugbúnaðar og tæknilausnum.
Starfsfólk Alskila hefur mikla reynslu af innheimtustörfum og eru verkferlar mótaðir m.t.t. þess sem best hefur reynst.
Alskil og Kollekta vinna saman og veita kröfueigendum heilsteypta þjónustu við greiðslumiðlun og innheimtu vanskilakrafna.
- Veitir þjónustu á öllum stigum greiðslumiðlunar, frá útgáfu reiknings til löginnheimtu
- Mæta þörfum fyrirtækja og samskiptum við þau, með áherslu á nýjustu tæknilausnir
- Auka skilvirkni í innheimtu og meðferð viðskiptakrafna
- Veita kröfuhöfum enn betri yfirsýn yfir innheimtumál sín
- Mæta sértækum þörfum kröfuhafa sem áskorun um að gera ávallt betur